Samfélagið

 

Birgir Nielsen - Trommuleikari vikunnar 16.08.10 Skoða sem PDF skjal Prenta út

altTrommari vikunnar hjá okkur er Birgir Nielsen sem hefur gert garðinn frægan með hinum ýmsu sveitum, t.d. Land og Synir, Klaufar, VV&B, Maat Mons, Sælgætisgerðin, Stolið, Moon Boots, Bravo o.fl. Við tókum hann tali og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar:

Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?

Tónlist hefur alltaf skipað stóran sess í lífi mínu, alveg síðan ég man eftir mér. Pabbi minn, Þór Nielsen, var í hljómsveitum í gamla daga og ég reyndi alltaf að fara með honum á hljómsveitaræfingar. Hann er reyndar gítarleikari & söngvari en mér fannst trommurnar miklu meira spennandi og við vorum farnir að fara fyrr á æfingar út af mér svo ég gæti stolist í settið hjá Benna Páls. Þá var ég 6 ára og svo endaði þetta með því að ég fékk sett þegar ég var 10 ára gamall. Þetta var gamalt Yamaha sett. Ég á þeim báðum, pabba og Benna mikið að þakka jú & svo auðvitað kennurum mínum; Guðmundi Steingríms, Reyni Sig, Matta Hemstock, Pétri Grétars, Einari Scheving og Gulla Briem. Annars fór ég að læra frekar seint, fór í FÍH þegar ég var 16 ára & kynntist þá nótnalestri fyrst. Annars var ég svolítið lengi í gang og var til vandræða, mætti ílla á tímabili og svona, en svo kom þetta.

Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?

Þessari spurningu verður nú ekki auðveldlega svarað. Við eigum ofboðslega mikið af frábærum trommurum & erum við flest allir vel tengdir sem er frábært. Gaman hvað trommarar eiga auðvelt með að deila ástríðu sinni frekar enn aðrir hljóðfæraleikarar, það er bara staðreynd. Mig langar samt að nefna úr erlendu deildinni Buddy Rich sérstaklega, hann hefur alltaf verið minn maður auk þess sem að Larry Mullen úr U2 hefur haft djúp áhrif á mig. Hann er bæði solid & hugmyndaríkur þegar kemur að því að fara óhefðbundnar leiðir. Annars eru svo margir t.d. Steve Gadd, Vinnie Colaiuta, Charlie Watts, John Bonham og margir fleiri.

Hvað er á döfinni hjá þér?

Ég kenni á trommur/slagverk í Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Svo er ég að leggja loka althönd á plötu með Micka Frurry þýskum wedding singer sem ég bjó til fyrir 15 árum en það er eitthvað tjáningaform annað en trommuleikur sem ég verð að koma frá mér en það er súrara en slátur þetta stöff, en hressir alla. Svo er aldrei að vita hvort ég ráðist bara ekki í hitt solo-stöffið á næsta ári en það er meira tromms!! Það sem er í gangi í studíoupptökum núna eru Klaufar, Stolið, Nú meikaraða Gústi og plata til styrktar mæðrastyrksnefndar.

Hvernig græjur ertu að nota?

Yamaha Beach Custom Vintage Finish, einfaldlega besta sett sem að ég hef spilað á. Sorglegt að Yamaha hættu framleiðslu á þessari týpu. 24, 12, 13, 16 og 14" og 10" sneriltrommur. Flest allir cymbalar sem ég nota keypti ég fyrir fermingapeningana. K og A Zildjian línurnar hef ég notað lengst af en þetta hefur aðallega farið eftir því hvað ég er að spila hverju sinni og svo samtíningur frá Paiste og Meinl, maður er alltaf opinn fyrir topp eintaki.

Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja?

Ekki vanmeta paradiddluna. Vá hvað opnuðust margar dyr, þá sérstaklega varðandi áherslur. Munið að það er helmingi erfiðara að spila hægt heldur enn hratt. Berið ávallt virðingu fyrir hljóðfærinu ykkar og svo skapar æfingin meistarann svo einfalt er það.

Ég gerði mikið að því að spila með músík þegar ég var yngri, bara með stöffi sem ég var að fýla en þá öðlast maður góðan skilning á því að vera stöðugur í bítinu sem er það mikilvægasta þegar kemur að trommuleik.

Að lokum: passið eyrun!

Takk Birgir!