Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?
Ég var aðeins tveggja ára gamall þegar Ívar elsti bróðir minn var í bílskúrsbandi sem æfði í bílskúrnum heima á Hvolsvelli. Hann spilaði sjálfur á gítar þá en ég féll fyrir trommusettinu og vildi heldur sitja við settið og berja heldur en að vera úti að leika við krakkana og ef ég fékk ekki að tromma á trommusettið þá dróg ég bara út pottana og pönnurnar hennar mömmu.
Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?
Ég hef allaf átt erfitt með að finna áhrifavalda á mínum fyrri árum, en ég hugsa að það sé aðallega Ívar bróðir, en hann byrjaði að tromma um svipað leiti og ég nema að hann átti trommusett og var í hljómsveit, ég gat bara horft á hann æfa og svo tók ég trommusóló þegar þeir tóku pásu (svo keypti ég settið af honum á endanum). Það eru svo margir trommarar sem maður spáir í þessa dagana. Ef ég nefni nokkra sem ég hef verið með ofarlega í huga síðustu misseri þá eru það menn eins og Vinnie Colaiuta, Steve Gadd, Steve Jordan, Dennis Chambers, Thomas Pridgen, Omar Hakim, Tony Allen, Questlove o.fl.
Og auðvitað þeir sem hafa kennt mér í FíH; Scott McLemore, Eric Qvick, Einar Scheving, Óli Hólm, Matthías Hemstock, Gulli Briem.
Hvað er á döfinni?
Það er hellingur af giggum með Veðurguðunum framundan auk þess sem Fjallabræður eru að fara af stað á ný eftir smá hlé. Svo er
blúsbandið mitt, Munaðarleysingjarnir hugsanlega að fara að telja í plötu á næstu dögum. Svo vorum við að hefja nýtt verkefni við Halldór Gunnar og Sverrir Bergmann sem lofar góðu. Það er eflaust eitthvað sem ég er að gleyma…
Hvernig græjur ertu að nota?
Ég á nýtt Yamaha Absolute Maple sett sem ég nota mest með Veðurguðunum þessa dagana. Svo er ég að nota 80 módel Sonor Rosewood sett sem hefur fylgt mér frá því ég var tveggja, en það nota ég mest í blús, jazz og funk músík. Svo er ég með gamalt Ludwig Rockers sett sem ég nota í allskyns snatt. Cymbalarnir sem ég nota eru úr öllum áttum. Sabian, Bosphorus, Paiste, Dream, Zildjian, Cosmo. Ég nota aðallega 21" Sabian Duo Ride, 18" Bosphorus Crash, 18"Dream Ride/Crash og 15" Cosmo HiHat. Svo er maður alltaf eitthvað að rótera.
Hugsanlega er ég að fá nýtt Gretsch sett bráðlega... bíð mjög spenntur.
Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja?
Þegar ég var ungur rokkari með tvöfalda trommusettið mitt uppi á háalofti á verkstæðinu hans pabba hér á árum áður, þá var ég alltaf á móti því að fara í tónlistarskóla. Það er hugsunarháttur sem ég mæli ekki með. Ég fattaði það þegar ég byrjaði loks að læra. Svo tel ég mikilvægt að hlusta á allskonar músík, æfa sig í sem flestum stílum, það fleytir manni áfram. Drífið ykkur í tónlistarskóla eða einkatíma! Svo skiptir miklu máli að sitja rétt við trommusettið þegar maður fer að spila mikið, og passa heyrnina líka!.
Takk Óskar!