|
Trommuleikari vikunnar er finnski trommusnillingurinn Samuli Kosminen. Samuli er okkur íslendingum vel kunnur en hann hefur lengi starfað með hljómsveitinni Múm ásamt að leika inn á sólóplötu Jónsa úr Sigur Rós, Go! Hann hefur einnig starfað með Kira Kira, Valgeiri Sigurðssyni og Emilíönu Torrini hér heima og tónlistarmönnum á borð við Sami Kukka, Pekka Kuusisto, Pepe Deluxé o.fl. í Finnlandi. Samuli hefur lengi starfað með Finnska harmonikkuleikaranum Kimmo Pohjonen (sem er með tónleika á Listahátíð Reykjavíkur 21. maí) ásamt því að starfa með sveitinni KTU sem ásamt honum og Kimmo skipa þeir Trey Gunn og Pat Mastelotto úr King Crimson. Í augnablikinu er Samuli í pásu frá þeirri sveit til að sinna öðrum verkefnum. Hann hefur einnig lagt stund á tónsmíðar og ásamt Kimmo Pohjonen samdi hann verkið UNIKO sem hann flutti með hinum heimsþekkta Kronos kvartett.
Við tókum Samuli tali og lögðum fyrir hann spurningarnar okkar góðu:
Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?
Frá því að ég man eftir mér hef ég alltaf þráð að verða trommari. Þegar ég var um 3ja ára gamall man ég að ég tilkynnti foreldrum mínum hátíðlega að ég ætlaði að verða besti trommuleikari heims og barði síðan alla þá potta og pönnur sem ég fann! Ég býst ekki við að foreldrar mínir hafi tekið þessa yfirlýsingu mína mjög alvarlega því það var ekki fyrr en 10 árum seinna að ég eignaðist mitt fyrsta trommusett. Ég ólst upp litlu sveitaþorpi og þar var sem betur fer lítill tónlistarskóli og ég fékk frábæran kennara sem hvatti mig mikið áfram og hann ásamt Roger Taylor (Duran Duran) urðu hetjurnar mínar á augabragði. Hann hvatti mig til að flytja til Helsinki og fara í góðan tónlistarskóla, þar sem ég gæti lært meira um jazz og pop tónlist. Nokkrum árum síðar gerði ég það og afrekaði að fá mig rekinn úr þeim skóla nokkru síðar!!!
Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?
Þegar ég var 5 - 6 ára hlustaði ég mest á Stray Cats og Matchbox og í minningunni voru það þessar sveitir sem ollu minni fystu meiriháttar upplifun af tónlist. Foreldrar mínir hlustuðu mikið á Finnskt 70´s og 80´s popp og "slager" tónlist og ég vara að fíla það í ræmur.
Þegar ég var byrjaður að tromma þá átti hip-hop tónlist hug minn allann og í gegnum hana uppgötvaði ég mína uppáhaldstónlist; funk - soul og reggae. Í gegnum níunda áratuginn var allt sem ég gerði meira og minna byggt á fönk rytmum. Það eru svo margir magnaðir trommarar að spila þessa tónlist sem ég hlustaði mikið á; Zigaboo Modeliste, Sly Dunbar, Tiki Fullwood, Clyde Stubblefield, Dennis Chambers, Bernard Purdie o.fl.
Seinustu ár hef ég ekki hlustað eins mikið á þessa tónlist og það er kannski tvisvar á ári sem ég uppgötva tónlist sem hefur virkileg áhrif á mig, en það er oft tónlist úr öðrum áttum sem inniheldur engan trommuleik, t.d. raftónlist, gítartónlist eð túbuleikur... Ég fæ nú til dags mestan innblástur úr hversdagslegum hlutum eins og að.... búa til mat, mannlegum mistökum, frá vinum og kunningjum og til að vera hallærislegur þá veita börnin mín mér mikinn innblástur og láta mig hlæja eins og vitleysing á hverjum degi!
Hvað er á döfinni hjá þér þessa dagana?
Í augnablikinu er ég að vinna að tveimur verkefnum þar sem ég er að semja sirkus tónlist fyrir Ville Walo og Kalle Hakkarainen, verkin verða frumflutt í september á þessu ári í Helsinki.
Svo verð ég að spila á Viapori jazz hátíðinni í ágúst, en það er verkefni sem mér er ákaflega hjartfólgið; ásamt gítarleikaranum og fjöl-hljóðfæraleikaranum Jarmo Saari flytjum við tónlist John Williams úr Star Wars myndunum; útsett fyrir gítar, trommur, hörpu, theremin, claviola, ferðatölvu og ýmisleg lítil hljóðfæri og dinglumdangl.
Svo var ég að enda við að innrétta stúdíó hér heima hjá mér, á litlu eyjunni sem ég bý á með fjölskyldunni minni og vonast til að geta unnið hér eins mikið og hægt er. Ég vona að ég geti loksins farið að klára sólóplötuna sem ég er búinn að vera með í smíðum í þrjú ár.
Hvernig græjur ertu að nota?
Uppistaðan í settinu mínu þessa dagana er Arbiter Flats sett; 20", 10" og 16" eða gamla Premier settið mitt; 20", 12" og 14"
Ég nota mikið af alls konar drasli og dóti sem ég strái um allt trommusett til að búa til skemmtileg hljóð, dót sem ég finn á flóamörkuðum og hér og þar og ég nota mikið eftir því hvaða tónlist ég er að gera. Leyndardómur trommuhljóms míns er falinn í þessu drasli og dóti sem ég nota mjög mikið og tek með mér hvert sem ég fer. Svo nota ég mest brotna cymbala og ódýra byrjenda cymbala sem beyglast við hvert slag. Mér finnst gaman að prufa mig áfram með alls konar kjuða og hef mikið notað Vic Firth "Blades" sem þeir eru hættir að framleiða, skrambinn!! En svona almennt, þá nota ég mikið alls konar handslagverk.
Ég nota mikið af alls konar rafmagnstrommum og græjum; DrumKat, Mandala drum, Korg Wave Drum, Roland Handsonic HDP-15, DDRUM SE-4 sett, gamlan Simmons SDS-8 heila, Pearl Syncussion SY-1, Riyaz pro-electric tabla machine og alls konar gamla hljóð effekta og reverb.
Svo er ég algjört ferðatölvufrík. Aðal hugbúnaðurinn minn er Ableton Live og einnig nota ég Pro Tools mikið. Fyrir rafmagnstrommurnar elska ég 8BIT KIT for BFD sem Hösky Höskulds bjó til. Fyrir plögg nota ég Native Instruments, Applied Acoustic Systems, Audio Damage, Destroy FX, Puremagnetic, IK multimeida, Izotope, Cycling 74´, G Force...listinn er endalaus....
Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja?
Ehemmm...... Það er alltaf gott áð fá sér kennara og læra undirstöðurnar, það sparar manni tíma og vandræði seinna meir.
Það er mikilvægt að maður hafi skýra sýn á hver maður er og hvað maður vill segja. Ég hvet alla til að skapa sinn eigin stíl og sinn eigin hljóm en endilega lærið grunn undirstöðurnar þó það geti verið mikil og erfið vinna. Ekki eyða ævinni í að reyna að hljóma eins og uppáhaldstrommarinn ykkar eða verða bara "góður trommari". Verið skapandi og leytandi, þannig verðið þið heilsteyptir listamenn.
Takk Samuli!
|