|
Trommari vikunnar hjá okkur er Þorvaldur Þór Þorvaldsson. Hann er þessa stundina á hljómleikaferðalagi með Jónsa (úr Sigur Rós) um heiminn og verður það mestan partinn af því sem eftir er ársins. Það er því óhætt að segja að nóg sé að gera hjá honum. Þorvaldur hefur einnig leikið með sveitum á borð við Í Svörtum Fötum og Bossanóvabandinu hér á Íslandi. Við spjölluðum við hann þar sem hann er nú staddur á ferðalagi og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar:
Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?
Þegar ég var sirka átta ára sá ég Skólalúðrasveit Seltjarnarness spila jólatónleika á Eiðistorgi. Einn af trommurunum tók stórkostlegt sneriltrommusóló á kantinn í laginu “Jólsveinninn minn”. Það er skemmst frá því að segja að þetta sóló breytti lífi mínu!!!! Eftir þetta var ekki aftur snúið... þarna var ég búinn að finna það sem ég vildi gera í lífinu. Vil ég nota tækifærið og þakka þessum síðhærða trommara sem ég veit engin deili á, fyrir að hafa kveikt trommuneistann hjá mér.
Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?
Mér fannst Elton John alveg trylltur þegar ég var lítill. Einnig fannst mér Adam Ant vera heví töff með plástur á enninu. Freddie Mercury var líka gebbaðslega kúl!!! Svo gleymi ég aldrei þegar ég heyrði í Led Zeppelin fyrst... Svenni nágranni spilaði "D'Yer Mak'er" fyrir mig og þetta var fallegasta tónlist sem ég hafði á æfinni heyrt. Þessa dagana er ég aðallega að hlusta á D'Angelo, Kid Cudi, Dan Black, ADHD, Mos Def, Lil Wayne, India.Arie, Prince, Jay-Z og Kanye West.
Hvað er á döfinni?
Ég er núna á hljómleikaferðalagi með Jónsa (úr Sigur Rós).
Hvernig græjur ertu að nota?
Fyrst ber að nefna frábæra 15”x7,5” sneriltrommu frá ARCS. Ein sú best sándandi og best lúkkandi sneriltromma sem ég hef prófað!
Svo er ég með annan sneril, Ludwig Supraphonic, 14”x5”. Ég er yfirleitt með 12” splash liggjandi ofan á honum.
Bassatromman er Yamaha Recording Custom, 22”x14”.
Rakk tomman er Yamaha Recording Custom, 14”x9.5”. Liggjandi ofan á henni er handarkúlupoki frá LP.
Ég er með tvær floor, eina Premier Signia Marquis 16”x16”, og eina 18”x16” Premier Custom held ég... (takk fyrir lánið Orri). Yfirleitt er ég með stóran bleikan klút yfir þeim báðum (Þessi klútur er kyrfilega merktur Ólafi Laufdal). Ofan á annarri floor er ég svo með hristudót frá meinl, og ofan á hinni er ég með nokkrar málmplötur bundnar saman, sem ég lét skera út úr gömlum cymbal fyrir mig.
Cymbalarnir eru ýmsir... Fyrst ber að nefna hvítan bjórglasabakka frá Grolsch. Svo er ég með snilldar “trashy” ruslatunnu-cymbal frá Factory Metal Percussion. Ég er með eina diskasamloku sem samanstendur af Will Calhoun Alien Disc frá Sabian og 8” drasl splash ofan á honum.
Ég er með 14” Hi hat, 16” crash, og 22” ride frá Spizzichino, hugsanlega bestu cymbalar í heimi! Einnig 17” Evolution HHX crash frá Sabian. Ofan á hi hattinum er ég með liggjandi tamborínu. Pro mark rattle kúlur ofan á ride-inum. Svo er ég með tvo kúpta sánd effekt cymbala frá LP.
Að lokum er ég með Roland SPD-S sampler á kantinum.
Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja?
Æfa sig mikið. Hlusta mikið á tónlist. Spila mikið af tónlist. Leika sér mikið. Borða hollan mat. Hreyfa sig. :)
Takk Þorvaldur!
|