|
Trommari vikunnar hjá okkur er Nói Steinn Einarsson sem hefur verið að spila með sveitum á borð við Leaves, Feldberg og Bang Gang undanfarið. Hann sá um trommuleikinn á hinni mögnuðu plötu Eberg, "Antidote" og lék einnig inn á sólóplötu Bjarna Hall úr Jeff Who?. Nói hefur einnig leikið með sveitunum Stafrænn Hákon, Náttfara og Panorama.
Það má segja að í nægu sé að snúast hjá honum þessa dagana, meðal annars stendur til að fara í hljómleikaför til Kína með Bang Gang og svo eru Leaves að vinna að nýrri plötu. Við náðum tali af Nóa og lögðum fyrir hann spurningarnar okkar góðu:
Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?
Bróðir minn hafði keypt sér trommusett sem hann notaði ekki mikið og ég byrjaði bara að tromma á það. Þá var ég 13-14 ára og svo vatt þetta upp á sig þegar nokkrir strákar sem voru með mér í skóla vildu stofna hljómsveit og ég vildi endilega vera með þannig að ég tróð mér í hljómsveitina og er búinn að vera að spila síðan.
Hverjir voru helstu áhrifavaldra þínir?
Ég var að hlusta mikið á Old school hardcore og rave music þegar ég var að byrja að tromma og hafði mikinn áhuga á flottum og hröðum töktum. Ég held að sú tónlist hafi haft mikill áhrif á það hvernig ég spila og svo kom auðvitað Nirvana fram á sjónarsviðið og þá fékk ég mikinn áhuga á rokki og fór að hlusta á Bonham og fleiri. Ég held samt að Jimmy Chamberlin úr Smashing Pumkins hafi verið minn helsti áhrifavaldur, svona í fyrstu.
Hvað er á döfinni?
Það er ýmislegt skemmtilegt á döfinni hjá mér og þá helst að nefna mjög spennandi Kínatúr með Bang Gang, Svo er meiri spilamennska með Feldberg og svo kemur plata frá Leaves sennilega með haustinu þannig að það er nóg að gera.
Hvernig græjur ertu að nota?
Þessa dagana er ég að nota Yamaha Maple Custom sett sem ég keypti 1994 og verð alltaf hrifnari og hrifnari af. Ég á líka mjög fínt DW sett sem ég nota mikið. Svo er ég með Roland-pad sem mér finnst skemmtilegt að blanda með í live spilamennsku. Ég er að nota 14" Zildijan Mastersound hihat og Zildijan projection 18" og 19" chrash og á svo æðislegan 24" kínverskan ride sem ég keypti í tónastöðinni. Ég spila yfirleitt með eina 14" tom og 16"floor og 22" bassatrommu en hef lika verið að leika mér með 24" og 26" bassatrommur.
Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja?
Já, bara að vera dugleg að æfa og fara í tónlistarnám og ná sér í góðan grunn. Það er það sem ég sé mest eftir að hafa ekki gert.
Takk Nói Steinn!
www.myspace.com/leavestheband
www.myspace.com/feldbergmusic
|