|
Kimono trommarinn Kjartan Bragi Bjarnason er trommari vikunnar hjá okkur. Það er margt að gerast hjá Kjartani og félögum hans í Kimono þessa dagana. Þeir voru að gefa út nýja plötu, Easy Music for Difficult People, og svo eru útgáfutónleikar þeirra ný afstaðnir. Kjartan hefur einnig verið að spila með hljómsveitinni Seabear sem eru að gefa út plötu á allra næstu dögum og á leið í tónleikaferðalag. Við tókum hann tali og lögðum fyrir hann spurningarnar okkar góðu:
Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?
Pabbi er trommari, spilaði með Völundi á Egilsstöðum og síðan í Saga Class hér í bænum þannig að ég þurfti ekki að hafa mikið fyrir að komast í sett. Fór með honum á æfingar og í rót, átti það til að sofna við bassatrommuna þannig ég kunni vel við mig nálægt settinu. Svo var ég alltaf að slá takta á lærin á mér og brjóstkassann og einu sinni þegar ég var í heimsókn hjá ömmu þá hélt hún að ég væri eitthvað veikur fyrir hjartanu því ég var alltaf að lemja þar. Hún gerði sér enga grein fyrir að ég var að slá bassatrommutaktinn. Þannig að ég man ekki eftir mér öðruvísi en að vera að lemja á hitt og þetta. Svo byrjaði ég að læra á klassískt slagverk á unglingsárum í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og meðfram því fór ég í lúðrasveitina þar og stofnaði rokkhljómsveit með strákunum sem bjuggu í sömu blokk og ég. Við hétum Hoppandi Hirðfífl og komum fram í Hemma Gunn. Þannig byrjaði það og eftir það varð ekki aftur snúið.
Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?
Pabbi hafði mikil áhrif á mig, hvort sem hann vissi af því þá eða ekki. Ég var náttúrulega alltaf í kringum hann og pikkaði upp það sem hann var að gera. Svo höfðu kennararnir mínir mikil áhrif á mig, Steef van Oosterhout og Matti Hemstock. Matti opnaði alveg nýjan heim fyrir mér um það hvernig er hægt að spila á trommusett. Langmest áhrif á mig hafði samt Eggert Pálsson pákuleikari, sem kenndi mér í Hafnarfirði. Hjá honum lærði ég grunninn að öllu því sem ég kann í dag. Hann kenndi mér grundvallaratriðin í tækni og náði einhvern veginn að gera ótrúlega leiðinlegar æfingar skemmtilegar, alveg frábær. Svo gleymi ég aldrei þegar ég kynntist Smashing Pumpkins. Ég hlustaði ekki á annað en Jimmy Chamberlain og félaga í nokkur ár og spilaði endalaust með plötunum og lærði hvert einasta breik. Núna hef ég ekki eins mikinn áhuga á svona rosalega tæknilega góðum trommurum. Leita frekar eftir trommurum sem spila vel eftir tónlistinni en eru ekki með eitthvað show off.
Hvað er á döfinni?
Kimono voru með útgáfutónleika síðasta fimmtudag sem tókust mjög vel og ég skemmti mér konunglega á.
Nýjasta plata Seabear; We built a Fire er að koma út hér á Íslandi á næstu dögum. Þau eru að fara að túra í Bandaríkjunum og Evrópu núna en ég verð heima þar sem ég á von á erfingja í lok mars. Kimono verða einnig rólegir á næstunni af sömu ástæðu.
Hvernig græjur ertu að nota?
Ég á gamalt champagne sparkle Ludwig sett frá sextíu og eitthvað. 22" bassatromma, 13" tom og 16" floor. Ég á 14" Rogers Dynasonic sneril en nota meira 14" Premier málmsnerilinn minn. Cymbalarnir eru 15" gömul Zildjian samloka, 18" Paiste crash og 21" Sabian HHX Groove Ride. Pearl bassatrommupedall og svo nota ég prik sem heita ProMark 5B.
Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja?
Bara klassískt svar við því, en það virkar. Koma sér í kennslu til að læra grunninn. Spila svo eins mikið og hægt er með eins mörgum og hægt er, hvort sem það er í einrúmi eða með öðrum.
Takk Kjartan!
www.myspace.com/kimono
www.myspace.com/seabear
|