Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?
Ætli það hafi ekki verið hann bróðir minn sem kom mér útí þetta til að byrja með. Hann var trommari í hljómsveit og var með sett í skúrnum sem maður stalst í annað slagið. Hann smitaði mig af þessari tónlistarbakteríu, en mig langaði reyndar alltaf að verða gítarleikari eftir að ég sá minnigartónleika Freddy heitins Mercury. Þar stóð uppúr að mínu mati hljómsveitin Metallica og ég varð mikill aðdáandi uppúr því. Fór í gítarskóla í nokkur ár og veit ekki betur en að ég sé enn mest lærði gítarleikari Diktunnar. Síðan æxlaðist það að einhvern veginn að ég fór með Jóni Bjarna félaga mínum á æfingu hjá hljómsveit sem hann var í og trommarinn þeirra var eitthvað fjarverandi og ég fékk að taka í tunnurnar og þaðan var ekki aftur snúið. Síðan drógum við okkur saman ég, Jón og Skúli sem var að gutla eitthvað á bassann og við gerðum öllum nágrönnum í hverfinu hans Jóns lífið leitt. Svo nokkrum árum seinna kom Haukur inní bandið á fyrsta árinu okkar í menntó ef ég man rétt, og við höfum starfað óbreytt síðan. Það kemur svo vonandi að því að ég fái að taka eitt Kirk Hammet sóló á tónleikum á næstu misserum. Ég kann þau öll.
Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?
Fyrsti geisladiskurinn sem ég keypti mér var "Sailing The Seas of Cheese" með Primus og ég hlustaði mikið á hann og seinna meir alla þeirra tónlist. Ég hef mjög gaman að bassaleikurum og er t.d. Jaco Pastorius einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum. En af trommuleikurum þá æfði ég mig oft með því að hlusta á og spila með Sykurmolunum og finnst Sigtryggur magnaður. Mezzoforte er eithvað sem ég aldist líka upp við þegar ég var lítill og það endaði svo á að ég fór á tvö trommunámskeið hjá Gulla Briem sem var snilld. Svo fór ég líka í FÍH í eitt ár og lærði hjá Matta Hemstock og Eric Qvick. Af erlendum trommurum sem fíla má nefna: Vinnie Colaiuta, Stewart Copeland, Jimmy Chaimberlin, Josh Freese, Matt Cameron, Gary Novac, Danny Carey og
marga fleiri. Annars hlusta ég á mjög breytt svið af tónlist allt frá Sade uppí Opeth. Vonandi er það ekkert verra.
Hvað er á döfinni?
Bara að spila með Diktunni hér heima og vonandi eitthvað úti. Setjum stefnuna á Evrópu seinna á þessu ári.
Hvernig græjur ertu að nota?
Ég er að nota sett frá Maryland Drums. Pantaði það frá BNA fyrir plötuna okkar Hunting For Happiness og það kom í miðjum upptökum þannig að á helmingnum af plötunni spila ég á það og hinn helminginn á lánssett, Yamaha Maple Custom ef ég man rétt. En Maryland settið er úr Maple og stærðirnar eru: 10", 12", 14", 16" og 22" BD. Svo snellur, ein í 14" x 6.5" í Maple og önnur sama stærð í Black Brass. Svo á ég gamlan Noble & Cooley sneril 14" x 4" sem er magnaður og svo einn Pearl Maple sneril 13" x 3". Af hihats nota ég núna Paiste Twenty 14", á líka 14" Dark Energy og Sabian AAX Fusion Hats og gamalt 15" par frá Zildjian. Svo nota ég 19" A Custom crash Zildjian og 18" Paiste Twenty Crash og svo 20" Paiste Signature Full Ride. Svo eitthvað smádót með þessu.
Ég er búinn að prufa helling af kjuðum en er kominn í 5B Vic Firth og finnst þeir voða fínir núna.
Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja?
Mér fannst voða gott að spila með tónlist, lærði helling af því. Svo líka bara að hlusta á allskonar tónlist og allskonar tónlistarmenn, ekki bara trommara. Mæli líka með einhverri kennslu. Læra grunnatriðin og einhverja tækni því það hjálpar að hafa góða undirstöðu undir skýjakljúf rythmans sem byggja skal. Aðalatriðið er síðan náttúrulega að hafa gaman að þessu.
Takk Jón Þór!
myspace.com/dikta
www.dikta.net