Samfélagið

 

Magnús Trygvason Elíassen - Trommuleikari vikunnar 5.10.09 Skoða sem PDF skjal Prenta út

altTrommari vikunnar er Magnús Trygvason Elíassen. Magnús hefur vakið athygli fyrir frábæra spilamennsku og mikinn sköpunarkraft og hefur komið með skemmtilegt innlegg í trommuleik og tónlist almennt á Íslandi. Hann hefur ferðast mikið með hljómsveitum á borð við Seabear, Borko og K-tríó undarfarin ár. Undanfarin tvö ár hefur hann tekið þátt í ungliðajazzkepninni "Young Nordic Jazz Comets" og unnið hana í bæði skiptin, fyrst með K-tríó og svo nú í ár með sveitinni Reginfirru. Svo er nóg að gerast; plata með Ellen Kristjáns á leiðinni og ADHD800 að klára plötu...

Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?

Ég ætlaði alltaf að verða fótboltamaður en var beðinn um að hætta eftir tvö handleggsbrot þegar ég var 7 ára. Svo vildi það nú bara þannig til að ég og pabbi vorum alltaf að spila með útvarpinu í bílnum, lemjandi á allt sem hægt var að lemja á. Þannig að mér var komið í slagverksnám hjá Guðmundi R. Einarssyni og svo stuttu seinna komið í Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts.

Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?

Foreldrar mínir og amma og afi höfðu náttúrulega gífurleg áhrif á mig. Þau voru, og eru reyndar ennþá, mjög áhugasöm um allt sem ég geri sem er frábært. Mamma og pabbi spiluðu mjög mikið með mér þegar ég loksins eignaðist mitt fyrsta trommusett sem hefur sennilegast bara gert mér gott. Trommuáhrifavaldar...tjahh, mér fannst Jeff Porcaro alltaf frábær og ég puðaði og puðaði við það að pikka upp Rosanna taktinn. En þeir eru nú fleiri; Paul Motian, Elvin Jones, Tony Williams, Audun Kleive, allir kennararnir mínir í gegnum tíðina, og svo bara allir sem ég hef eða er að spila með og svona...

altHvað er á döfinni?

Við í "Amiina, Kippi og Maggi" hópnum vorum að klára að taka upp tvö ný lög fyrir plötu sem kemur út í janúar. Svo er hitt og þetta í farveginum, tónleikaferðalag með hljómsveitinni Sin Fang Bous um Bandaríkin og svo eru ADHD800 að vinna að plötu, svo fátt eitt sé nefnt.

Hvernig trommur ertu að nota?

Ég er með Ludwig trommusett, champagne sparkle áferð. Með því hef ég gamlan premier sneril sem ég man ekki hvað heitir en er allavega 14 sinnum 8. Svo nota ég alls kyns cymbala, m.a. Istanbul Agop 22 tommu, Zildjan dark/dry 17 tommu krass, alls kyns hihatta og ég veit ekki hvað og hvað...

Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja að tromma og/eða læra?

Hafa gaman að því sem maður er að gera. Það finnst mér númer eitt tvö og þrjú. Stofna hljómsveit, spila með plötum, gera eitthvað.

Takk Magnús!

http://www.myspace.com/adhd800

http://www.myspace.com/ktriomusic