Samfélagið

 

Sigtryggur Baldursson - trommuleikari vikunnar 29.05.09 Skoða sem PDF skjal Prenta út

 

altSigtryggur Baldursson er trommari vikunnar hjá okkur. Sigtryggur hefur verið einn okkar fremsti trommuleikari í fjölda ára. Hann gerði garðinn fyrst frægan með hljómsveitinni Þeyr á áttunda áratugnum og seinna hljómsveitunum KUKL og Sykurmolunum. Hann hefur leikið með ótal listamönnum bæði hér heima og erlendis, t.d.; Megas, Björk, Emilíönu Torrini, Ben Frost, Pétri Ben, Mugison, Lay Low, Júpíters og ótal fleiri. Hann hefur einnig verið iðinn við sín eigin verkefni, t.d. Steintrygg og Parabólur sem eru að gera ákaflega athygliverða hluti. Við hringdum í hann og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar:

Hvað varð til þess að þú byrjaðir að tromma?

Ég átti mér mikinn rokk-draum í æsku um að verða trommari og fékk á endanum gefins sneriltrommu. Ég spilaði nú ekki mikið á hana þar sem mig langaði í allann pakkann, þ.e. trommusett. Ég var eitt sinn á fótboltaferðalagi erlendis með Breiðablik þegar drengur að nafni Birgir Mogensen (seinna bassaleikari Kukl o.fl) var að leita eftir mannskap í hljómsveit. Ég laug því að ég væri trommari og varð síðan að standa við stóru orðin er við komum heim úr ferðalaginu. Ég komst í sett og æfði mig eins og vitleysingur þannig að ég gat spilað nokkra takta þegar kom að fyrstu æfingunni. Síðan varð ekki aftur snúið og ég hef ég trommað alla tíð síðan!

Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir?

Ég verð fyrstan að nefna Ásgeir Óskarsson með hljómsveitinni Eik, mér fannst hann alveg meiriháttar flottur. Svo hlustaði ég mikið á Ian Paice með Deep Purple. Seinna, þegar ég fór að pæla meira í tónlist þá hlustaði ég menn eins og Budgie sem var trommuleikari Siouxsie and the Banshees, Max Roach sem er stórkostlegur tónlistarmaður, Gene Krupa og Stevie Wonder. Trommuleikur Stevie Wonder á plötunni "Fulfillingness first finale" er alveg magnaður, sérstaklega í laginu "Boogie on reggea woman". Hann var með svo flottar grúv hugmyndir og alveg hrikalega fönkí trommuleikari.

Hvað er á döfinni hjá þér?

Í augnablikinu er ég að undirbúa útskriftarveislu dóttur minnar. Nú, svo er ég á leiðinni að banka eitthvað inn á sólóplötu Daníels Ágústs og svo er festival hljómleikaferð um evrópu með Emilíönu Torrini framundan. Hún hefst 23 júní og ég verð úti til ágúst loka.  Síðan er ég í hugmyndavinnu fyrir verkefni sem er að semja tónlist við ferðamynd um Taíland, ég verð í því verkefni í október/nóvember. Svo erum við í Parabólum, ég, Steingrímur Guðmundsson og Kippi Kanínus að semja efni fyrir Parabólurnar. Tónleikar með Steintrygg eru á döfinni þann 10 júní á Sódómu en platan okkar "Trappa" verður gefin út í Evrópu í haust á vegum One little indian útgáfunnar þannig að við verðum að spila í Skotlandi og Englandi í haust, trúlega um svipað leyti og tónleikar Emilíönu Torrini í Royal Festival Hall þann 15. september. Svo getur vel verið að vinur minn Bogomil Font láti eitthvað á sér kræla þegar tekur að líða á veturinn.

titleHvaða trommur ertu að nota?

Ég er með hljóðfærasamning við Premier og Paiste þó ég hafi nú ekkert verið að angra þá um græjur nýlega. Annars á ég sitt lítið af hverju, t.d. eitt 70´s Slingerland jazz sett; 18", 12", 14" og annað 70´s Premier sett, 22", 12", 13", 16". Svo er ég með eitt Premier Club kit, 20x8", 10x4", 13x12" og annað Premier Birch Classic sett; 22x16", 12x10", 16x16" og síðan Gretsch renown maple sett með risa bassatrommu; 22x20", 12x10", 16x14". Svo á ég slatta af sneriltrommum: Gamlan Premier 14x7" sem ég keypti af Lee Kerslake trommara Uriah Heep, tvo aðra Gretch snerla, stálsneril14x4" og maple sneril 14x5.5", einn Premier soprano 10x6", Premier 13x5.5" sem ég fékk með Club settinu, og svo einn Noble and Cooley 14x5.5". Síðan má ekki gleyma 70´s Ludwig Black Beauty Super-Sensitive 14x6.5" og ÞYRL hamraða brass snerlinum 14x6.5" 

Áttu einhver holl og góð ráð fyrir þá sem eru að byrja að spila?

Ég mæli með að hlusta á allskonar tónlist, ekki bara þá tegund tónlistar sem þú ert að spila þá stundina. Það víkkar út sjóndeildarhringinn, gefur manni fullt af hugmyndum og innblástur. Það er um að gera að fá hugmyndir úr sem flestum áttum. Svo er umfram allt að hafa gaman að þessu!

Takk Sigtryggur!

www.parabolur.com

www.myspace.com/steintryggur

Steintryggur - Melur (video)