Samfélagið

Trommu Beat Camp 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út

BOOT-CAMP 2010

Trommu Boot Camp var haldið í Skálholtsskóla í Biskupstungum dagana 25.-27. júní 2010. Alls voru þáttakendur 13 talsins og hófst dagskráin á föstudeginum kl. 13:00 og voru menn að fram til kl. 00:30 fyrsta daginn. Á laugardeginum var byrjað af fullum krafti kl. 9:00 og stóð dagskráin fram til kl. 23:30 það kvöld. Á sunnudeginum hófst dagskráin aftur kl. 9:00 og lauk námskeiðinu kl. 18:00.

Námskeiðið tókst vonum framar og var heldur betur tekið á því. Þátttakendur stóðu sig frábærlega og lögðu sig virkilega fram. Það er óhætt að segja að öll aðstaða var hreint frábær og gott betur en það. Bjarni Birgisson kokkur eldaði oní okkur ljúffengan mat eins og á 5 stjörnu veitingahúsi.

Beat Camp 2011 verður haldið á næsta ári í Skálholti dagana 3. - 5. júní 2011. Mögulegt er að vetrar Beat Camp verði haldið 25. - 27. febrúar ef næg þátttaka fæst.

Nokkrar umsagnir þáttakenda: ""Þetta var geggjað og ég er mikið að íhuga að fara aftur"  SV

"Með því magnaðasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur, þvílíkur félagsskapur, þvílíkar aðstæður, algjörlega trufluð upplifun!" JBL

"Þetta var erfitt en ég fékk rosalega mikið út úr þessu og lærði alveg heilan helling"  MG

"Ég lærði fullt af dóti sem ég hafði aldrei heyrt um áður...Mesta gaman sem ég hef lent í á síðari árum... Og maturinn.. Guð minn almáttugur, maturinn var frábær! Og þá má ekki gleyma aðstöðunni ! Svona allt í allt, var þetta sennilega besta helgi lífs míns " GDR

"Þetta var rosalegt! Ég hagnaðist mjög mikið á þessu og lærði alveg slatta. Aðstaðan til fyrirmyndar og maturinn himneskur" TSG

Með því að smella hér má sjá eitt myndband frá námskeiðinu (fleiri eru væntanleg) og hér fylgja nokkrar myndir:

alt

Skálholtsskóli

alt

Matsalurinn

alt

Matsalurinn

alt

Setustofan

alt

Svefnálman

alt

Allt komið á fullt....!

alt

Einbeitingin í botni...

alt

Veðrið var ekki af verri endanum, æfingasession úti...

alt

Menn farnir að svitna...

alt

Hjálmar

alt

Boggi

alt

Bræðurnir Smári og Valgeir í ham...

alt

Valli, Magnús, Bjarni og Smári

alt

Slakað á yfir trommu dvd...

alt

Gretschinn hans Dóra og Arcs settið hans Einars...

alt

Einar sýnir tökin, Tumi og Gosi fylgjast grannt með...

alt

Dóri

alt

Efri röð f.v.:  Einar, Magnús, Dóri, Boggi, Valli, Tumi, Pétur, Siguróli, Arnór & Örvar  Fremri röð f.v.:  Bjarni R, Hjálmar, Smári, Gosi & Bjarni E.